Nú styttist í að verkefnið Göngum í skólann hefjist í ellefta sinn.
Meginmarkmið verkefnisins er að hvetja börn til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla og auka færni þeirra til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni. Fræða þau um ávinning reglulegrar hreyfingar og að draga úr umferðarþunga, mengun og hraðakstri nálægt skólum. Auk þess er reynt að stuðla að vitundarvakningu fyrir virkum ferðamáta og umhverfismálum og það hversu “gönguvænt” umhverfið er.
Ein einfaldasta leiðin til að auka hreyfingu í daglegu lífi er að velja virkan ferðamáta, svo sem göngu, hjólreiðar, hlaup, línuskauta, hjólabretti eða annað. Ávinningurinn er ekki aðeins bundinn við andlega og líkamlega vellíðan heldur er þetta einnig umhverfisvæn og hagkvæm leið til að komast á milli staða.
Á undanförnum árum hafa milljónir barna frá 40 löndum víðs vegar um heiminn tekið árlega þátt í Göngum í skólann með einum eða öðrum hætti. Hér á landi hefur þátttakan vaxið jafnt og þétt og fyrsta árið voru þátttökuskólarnir 26 en alls skráðu 67 skólar sig til leiks árið 2016.
Þar sem það hafa ekki allir nemendur Flúðaskóla tök á því að ganga í skólann þá verður farið með alla nemendur skólans í gönguferð 14.september þar sem gengið verður að Kaldbaksvatni.