Skólaslit
Skólaslit verða fimmtudaginn 31. maí kl 14:00 í Félagsheimili Hrunamanna. Þeir sem þurfa akstur á skólaslit eiga að hafa samband við viðkomandi skólabílstjóra.
Skólasetning Flúðaskóla
Skólasetning Flúðaskóla er á mánudaginn 22. ágúst kl. 9:00. Skólaakstur er á skólasetningu og heimakstur er kl. 11:00 , þeir sem ætla ekki að nýta sér aksturinn eru vinsamlegast beðnir um að láta viðkomandi bílstjóra vita. Kennsla hefst á þriðjudaginn samkvæmt stundatöflu.
Tölvukerfi
Tölvukerfið verður lokað frá kl 16:00 í dag föstudag 12. ágúst til mánudagsmorguns 15. ágúst kl 9:00.
Vonandi hefur þetta ekki nein óþægindi fyrir ykkur.
Gleðilegt sumar
Skólasetning Flúðaskóla fyrir komandi skólaár verður 22.ágúst.
Gleðilegt sumar
Skólaslit Flúðaskóla
Á morgun kl. 14:00, miðvikudaginn 1. júní, verða skólaslit Flúðaskóla í Félagsheimilinu. Skólaslitin verða með hefðbundnum hætti og munu kórar skólans flytja nokkur lög. Hvetjum alla til að mæta í betri fötunum.
Ef nemendur þurfa að fá akstur þarf að hafa samband við viðkomandi bílstjóra því annars keyra bílarnir ekki.
Óskilamunir og skil á bókum